Ný Dögun - 01.11.1997, Blaðsíða 7

Ný Dögun - 01.11.1997, Blaðsíða 7
Æe=NÝ DÖGUN == Ólafur hafði gift okkur og skírt drengina og okkur mjög kœr. En áður en hann kom, var okkur sa^t að Friðþjófur Ingi vœri dáinn. Eg held að ég hafi þá þegar verið búin að gera mér grein fyrir því. Enn var haft orð á því að ég þyrfti sprautu og nú streittist ég ekki á móti. Ekki það að mér fyndist ég þurfa lyf, ég var bara dofin og undir svona kringumstœðum virðist vera hœgt að bera hvað sem er á borð fyrir mann. Við svona á- fall verður maður eins og viljalaust verkfœri. Ég held hins vegar að lœkn- ar noti ekki lyf í jafn miklum mœli nú og áður við þessar að- stœður. Sannleikur- inn er nefnilega sá að fœstir þurfa á þeim að halda. Alla jafna er fólk salla- rólegt, líkami og sál dofna upp, og því ónauðsynlegt að grípa til lyfja. Lík- aminn sér okkur sjálfur fyrir því sem við þurfum á að halda á svona stund- um. Séra Ólafur kom og keyrði okkur heim. Pá tók við það erfiða hlutskipti að hringja í alla nán- ustu fjölskyldu og vini og bera þeim fregnina af láti Fiffó. Ég treysti mér ekki til þess og mig minn- ir að Sverrir hafi að mestu borið þung- ann af því. Fjölskyld- an öll, foreldrar mín- ir, Steinunn (Dídí) Berndsen og Ingvar Pálsson, systkini og margir góðir vinir komu og umvöfðu okkur. Ingvar, elsti sonur okkar sem þá var orðinn 13 ára, var í sveit austur á Kálfafelli þetta sumar. Við höfð- um áhyggjur af því að hann fengi fregnir af slysinu úr útvarpi eða sjónvarpi. Við vissum að til stóð að birta frétt af slysinu í þessum fjölmiðlum um kvöldmatarleyti. Séra Ólafur fékk því framgengt með miklum fortölum að nafn Friðþjófs Inga yrði ekki birt, og þá á þeim forsendum að ekki hefði náðst í Ingvar bróður hans. Sjónvarpið birti mynd af Elliða- ánum með fréttinni af slysinu og Ingvar sagði okkur síðar að hann hefði horft á þetta og sá grunur hefði lœðst rétt sem snöggvast að honum að um annan hvorn brœðra hans hefði verið að rœða. Vinafólk okkar, sem býr austur á Klaustri fór að okkar beiðni til Ingvars og sögðu honum að Fiffó vœri dáinn og keyrðu hann í bœ- inn. Tengdaforeldrar mínir Ingi- björg Marelsdóttir og Friðþjófur Björnsson voru staddir austur á Eyrarbakka hjá ömmu Sverris, Sigríði Gunnarsdóttur. Pau komu öll til okkar. Sigríður hafði misst son sinn í sjóslysi tveim áratugum áður. Hún gisti hjá okkur nœstu vikuna og mér þótti mjög gott að vita af henni inni á heimilinu. Við rœddum ekki mikið saman, en það var svo ósköp gott að vita bara af henni. Kannski vegna þess að þarna var hún keik og upprétt þrátt fyrir sonarmissinn. Ég held að ég hafi fundið þennan styrk af henni vegna þess. Einhvern veginn liðu þessir fyrstu sólarhringar. Ég man ekki mikið frá þeim tíma. Pó er mér í fersku minni morgun- inn eftir slysið þegar rannsóknarlögreglu- menn birtust upp úr klukkan 9. Peir voru með einhverja bók og fóru strax að tala um krufningu. Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið. Petta fór mjög illa í mig, ég hafði aldrei fyrr á œvinni þurft að leiða hugann að þessu hugtaki. Eitt- hvað hljótum við að hafa mótmœlt því þeir sögðu okkur strax að það þyrfti ekki endi- lega að framkvœma krufningu. En ég spurði mig seinna hvers vegna þeir hefðu þá endilega þurft að koma og bera þetta upp við okkur. Og það áður en hálfur sólarhringur er liðinn frá láti barnsins. Pessi stund situr enn í mér og kemur róti á hug- ann. Ég átti erfitt með að gráta, en fyrstu nóttina hlýt ég að hafa grátið, því ég man að þegar dyrabjöllunni var hringt um morguninn gat ég vart opnað aug- un, svo þrútin og rauð- bólgin voru þau. SARSAUKI OG REIÐI Við sáum Fiffó nœst við kistu- lagninguna, á miðvikudegi, tveim dögum seinna. Við athöfnina voru aðeins okkar nánustu. Við Sverrir vorum aldrei ein með Fiffó hvorki fyrir eða eftir athöfnina. Ég hefði gjarnan viljað hafa haft tœki- fœri til þess. Ég reyndi allt hvað af 7 Brœðurnir, Ingvar, Friðþjófur og Sverrir Þór á góðri og Ijúfri stundu, þegar jólin 1983 gengu í garð. Þetta reyndust vera síðustu jólin sem Friðþjófur lifði.

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.